Sameiginlegur fundur með Zontaklúbbinum Sunna

12.03.2026

ZONTAKLÚBBURINN EMBLA býður til sameiginlegs fundar Zontaklúbbanna á suðvesturhorninu

miðvikudaginn 4. mars nk. kl. 19:00

Fundartími: Miðvikudaginn 4. mars 2026 kl.19:00

Fundarstaður: Salur Læknafélags Íslands, Hlíðasmára 8, Kópavogi, 4. Hæð (fiskbúðin Hafið og veitingastaðurinn Hraðlestin eru á jarðhæð hússins).

Matarverð er kr. 7.500.- sem greiðist inn á reikning 0101 26 700890, kt. 490890-1229.

Þess er óskað að Zontukonur tilkynni þátttöku með þvi að greiða matarverðið, eigi síðar en sunnudaginn 1. mars 2026, inn á ofangreindan bankareikning og sendi tölvupóst á netfangið hanna@apotek.is

Dagskrá

  1. Fundur settur: Hanna María Siggeirsdóttir formaður Zontaklúbbsins Emblu býður Zontur af suðvesturhorninu velkomnar til fundar.
  2. Zontakonur kynna sig.
  3. Matarhlé
  4. Bára Magnúsdóttir eigandi Jazzballetskóla Báru heldur erindi. „Þú verður sjálf að vera sólin“.
  5. Guðríður Sigurðardóttir formaður Menntunarsjóðs Mæðrastyrksnefndar kynnir starfsemi sjóðsins.
  6. Söngatriði. Emma Nardini Jónsdóttir
  7. Samsöngur.
  8. Happdrætti.
  9. Lokaorð og fundarslit.

Zontakonum gefst kostur á að kaupa drykki með matnum.

Zontaklúbburinn Embla vonar að sem flestar Zontur af suðvesturhorninu sjái sér fært að mæta á fundinn.

Zonta Reykjavikur